Tiltekt og skipulag heimilis – Skref fyrir skref að hreinna og þægilegra rými (ADHD-væn nálgun!)

Jæja, er kominn tími á  tiltekt á heimilnu?

Tiltekt og skipulag heimilis getur verið einföld og áhrifarík leið til að viðhalda hreinu rými, sérstaklega þegar hlutir hrannast upp og skyndilega er allt út um allt.

Það hefur verið mikið að gera, kannski veikindi eða einfaldlega annríki, og núna hefurðu fengið nóg af því að búa svona. En þegar þú lítur í kringum þig, sérðu dótið í hverju horni og veist ekki hvar á að byrja.
Hvað með að þrengja fókusinn og byrja á einu svæði?

Tiltekt þarf ekki að vera yfirþyrmandi ef þú tekur eitt skref í einu. Ekki einblína á allt í einu, heldur byrjaðu smátt og taktu eitt verkefni í einu.

Fyrir suma kemur þetta náttúrulega – þeir ganga frá hlutum jafnóðum og viðhalda skipulagi með vana og rútínu. Fyrir aðra getur þetta verið flóknara. Skortur á vana, skipulagningu eða einfaldlega of mikið álag getur gert það erfitt að byrja. Það er algengt að finnast verkefnið yfirþyrmandi og fresta því sífellt. Þess vegna getur verið gott að brjóta verkefnin niður í smærri skref sem eru viðráðanleg.

Tiltekt og skipulag heimilis – Einföld leið til að viðhalda hreinu rými

Tiltekt heimilis snýst um að halda rýminu hreinu og létta á daglegu álagi með einföldum venjum. Með því að venja sig á að ganga frá reglulega verður auðveldara að halda heimilinu hreinu og koma í veg fyrir að óreiða safnist upp.

Hér eru nokkur skref sem geta gert daglega tiltekt auðveldari

1️⃣ Ákveða hvar á að byrja

Er eitthvað svæði sem truflar þig sérstaklega?

Er eldhúsborðið fullt af hlutum sem safnast hafa saman?
Eru þvottahrúgurnar orðnar of stórar?
Hefur eitthvert rými verið óskipulagt lengi og þú vilt koma betra skipulagi á það?

2️⃣ Byrja á stórum hlutum

Ég byrja á þeim hlutum sem taka mest pláss og eru auðveldastir að taka ákvarðanir um, eins og

Föt sem á að brjóta saman og ganga frá
Uppþvottavélin – tæma hana og ganga frá
Er stofuborðið eða borðstofuborðið orðið fullt af hlutum sem þarf að ganga frá?

Þegar stærri hlutirnir eru farnir, verður auðveldara að sjá rýmið og vinna með smærri hluti.

3️⃣ Safna smærri hlutunum saman

Þegar stærri hlutirnir eru komnir á sinn stað, tek ég smærri hlutina sem eru eftir og safna þeim saman á einn stað. Þá fæ ég betri yfirsýn og á auðveldara með að ganga frá þeim. Einhverra hluta vegna hjá mér eru smáhlutirnir oft erfiðastir eða leiðinlegast að ganga frá þeim.

4️⃣ Body doubling – Að hafa einhvern með sér

Ef þú átt erfitt með að byrja á verkefni getur verið hjálplegt að hafa einhvern með sér, jafnvel þó hann taki ekki til með þér. Þetta er sérstaklega algengt fyrir fólk með ADHD, en það getur líka hjálpað öllum sem eiga erfitt með að einbeita sér. Að hafa einhvern nálægt getur hjálpað við að halda fókus, minnka leiða og veita næga orku til að klára verkefnið. Það hefur komið fyrir að ég hef þurft að fá aðstoð til að byrja, og ég hef fundið mikinn mun á því hvernig mér gengur að vinna verkefni með smá stuðningi.

5️⃣Tiltekt og skipulag heimilis – 10 mínútna regla sem einfaldar tiltektina

Hér er ein tillaga að reglu sem þú gætir sett þér: Stilltu tímann í símanum eða úrinu á 10 mínútur og síðan hefjast handa. Áður en þú veist af ertu búin/n að gera heilmikið og kannski mögulega sett þér þetta sem vana. Þetta getur hjálpað til við að koma í veg fyrir að hlutir hrannist upp og gert viðhald heimilisins auðveldara. Þetta þarf ekki að vera daglega, en settu þér markmið sem þú sérð þig geta náð. Þú gætir byrjað smátt og svo bætt við þig.

6️⃣ Tiltekt með fjölskyldunni – Þú þarft ekki að gera þetta ein/n!

Ef það hentar þínu heimili getur þetta verið góð lausn fyrir einfaldari og auðveldari tiltekt. Með því að dreifa heimilisverkum og létta álagið verður tiltektin minna yfirþyrmandi.
Heimilisverk þurfa ekki að vera á þínum herðum einum – þegar fjölskyldan hjálpast að verður allt léttara. Ef börnin þín eru orðin nógu stór til að taka þátt í heimilishaldinu, er það frábær leið til að kenna þeim ábyrgð og sjálfstæði, og létta á þér í leiðinni. Þá getur verið sniðugt að búa til skipulagt þrifakerfi.
Ef heimilisverkin eru dreifð á alla í fjölskyldunni verður auðveldara að halda heimilinu hreinu.

Dæmi um verkefnaskiptingu

Tæma uppþvottavélina fyrir mat eða setja í eftir mat
Setja í þvottavélina, taka úr, hengja upp eða brjóta saman
Sópa eða ryksuga

Hver og einn finnur leið sem hentar sér best til að viðhalda hreinu og skipulögðu heimili.
 Skipulag heimilis fyrir alla er einfalt en virkar!

Þú þarft ekki að taka allt í einu – byrjaðu á einu svæði og haltu áfram skref fyrir skref. Þú þarft ekki að taka allt í einu – byrjaðu á einu svæði og haltu áfram skref fyrir skref. Áður en þú veist af ertu búin/n að gera svo margt, meira kannski en þú bjóst við! 😊

👉 Finnst þér erfitt að byrja? Ég er hér til að hjálpa! Smelltu hér að neðan til að fá ókeypis ráðgjöf 

💻 Þú getur  bókað ókeypis ráðgjöf hér: https://betraskipulag.is/boka/

📞 Þú getur haft  samband við mig í síma 694-9532

Mundu, þú þarft ekki að gera þetta ein/n – saman getum við skapað rými sem virkar fyrir þig! Ef þú vilt fá aðstoð við tiltekt og skipulag heimilis, hafðu samband við mig. 💙