Tiltekt og skipulag fyrir flutninga – Einfalt ferli til að gera flutninga auðveldari

🛠️ Undirbúningur fyrir flutninga – Skipulag sem léttir lífið

✨ Að fara reglulega yfir eigur sínar getur verið mikill léttir, bæði þegar þú undirbýrð flutninga og þegar þú vilt einfalda líf þitt. Sama hvort þú ert að flytja eða einfaldlega vilt losa þig við óþarfa hluti, þá get ég hjálpað þér að finna bestu lausnina.
Í mínu tilfelli byrjaði ferlið löngu áður en ég vissi að við myndum flytja, og það kom sér einstaklega vel seinna meir.

📦 Af hverju er gott að fara yfir eigur sínar?

Hvort sem um ræðir flutninga eða einfaldlega að endurskoða dótið heima fyrir, er þetta tilvalinn tími til að ákveða hvað á að halda í og hvað má fara.

Spyrðu þig þessara spurninga:

Nýtist þetta mér ennþá?
✅ Hefur þetta eitthvert gildi fyrir mig?
✅ Myndi einhver annar fá meira notagildi úr þessu?

📦 Reynsla mín af því að fara yfir dótið og þar byrjaði tiltektarævintýrið

🔍 Einn daginn þurfti ég að fara í geymsluna hjá foreldrum mínum til að finna fatastöng. Ég var ekki viss hvar hún var, svo ég byrjaði að róta í dótinu. Eftir langa leit fann ég loksins fatastöngina 🎉 – en um leið áttaði ég mig á hversu mikið dót hafði safnast upp í geymslunni. Það var orðið erfitt að fóta sig! En þarna byrjaði óvænt tiltektarævintýri
Án þess að ætla mér það var ég komin með helminginn af dótinu út á gang. Ég horfði yfir það og hugsaði: “Jæja, ég held að það sé best að fá foreldra mína til að koma og fara yfir það svo við getum endurskipulagt geymsluna og gert hana meira aðgengilega.”😅 

“Hvað í ósköpunum er í gangi ?”

Þar sem ég nennti ekki að fara upp á 3. hæð, hringdi ég á dyrabjöllunni í forstofu stigagangsins og bað foreldra mína að koma niður. Þau eru orðin vön óvæntri skipulagsorku dóttur sinnar (sumir með smá ADHD skilja þetta vel 😄), komu niður, horfðu á mig og sögðu: “Hvað í ósköpunum er í gangi? Það er orðið svo mikið dót þarna inni að það er erfitt að fóta sig! Er ekki eitthvað sem þið eru hætt að nota? Er hægt að minnka þetta eitthvað niður?”

💡 Mér til ótrúlegrar gleði fóru þau yfir hlutina sína og losuðu sig við mjög mikið af dótinu sínu. Ég held að ástæðan fyrir því að þetta gekk svona vel hafi verið sú að þau vissu að þetta þurfti að gerast en v voru ekki tilbúin í það, þótt þau hefðu ekki hugmynd um að það myndi gerast þennan dag, eða yfirhöfuð. Við vorum aldrei búin að tala um að fara yfir geymsluna, en við vissum öll að það var orðið erfitt að fóta sig þarna inni..

📚 Ákveðnir hlutir erfiðari að losa sig við

Það eina sem þau vildu ekki fara yfir voru bækurnar. Þær höfðu safnast saman í gegnum árin, bæði úr bókaklúbbum og frá dánarbúi foreldra þeirra. Sérstaklega átti faðir minn mikið af bókum um smíði, múrverk og fleira. Ég nefndi að fólk leitaði frekar á YouTube eftir svona upplýsingum í dag, en hann var ekki tilbúinn að sleppa þeim – þá. Við fórum samt með tvær bílferðir af hlutum sem þau vorum tilbúinn að losa sig við til Sorpu, og loksins gátum við komið bókunum fyrir í hillum inni í geymslunni. Þetta var stór sigur!

📞 Bókaðu ókeypis ráðgjöf hér ef þú vilt fá hjálp við að skipuleggja og fara yfir eigur þínar!

📅 Ári síðar – hvað breyttist?

Eftir heilt ár ákváðum við að selja íbúðirnar okkar og kaupa hús saman. Ég sagði við móður mína: “Nú er góður tími til að fara yfir dótið okkar!”
Það var ótrúlegt að sjá hvað við gátum enn losað okkur við. Til dæmis átti móðir mín falleg sherry-glös sem hún hafði aldrei notað. Ég spurði: „Ætlarðu nokkuð að byrja að drekka sherry núna?“ Hún hugsaði sig um og sagði: „Nei, þau bara safna ryki.“

🚛 Og hvað með bækurnar? Faðir minn vildi fara yfir þær á nýja heimilinu. Ég sagði: „Ég held  að ég nenni ekki að burðast með níðþungar bækur sem þú getur losað við núna. Hví að bíða með það?“ Þegar við fórum niður í geymslu til að fara yfir dótið, spurði ég föður minn aftur hvort hann ætlaði enn að halda bókunum um smíði.

Hann svaraði strax: „LOSUM OKKUR VIÐ ÞÆR!“ 😂

Á einu ári hafði hann aldrei farið niður til að skoða bækurnar – hann hafði notað YouTube í staðinn. Þannig tók það hann ár að melta breytinguna, en að lokum var hann tilbúinn. Þetta sýnir að fólk þarf stundum tíma til að sleppa tökum á hlutum.

Núna var komið að mér:
Þar sem ég leigði íbúðina mína í nokkur ár, en geymslan fylgdi ekki með leigunni, fórum ég og vinkona mín saman yfir hana. Ég losaði mig við sumt af hlutunum mínum. því gott skipulag hjálpar að átta sig á hvað virkilega skiptir máli En ég verð að viðurkenna – ég hefði átt að fara betur yfir hana! Það var fullt af smáum hlutum sem, hvað getur maður sagt, ég hafði vaxið upp úr. Glös og diskar pössuðu ekki saman, pottar og pönnur sem ég hafði fengið hjá mömmu þegar ég var að byrja að búa, kassi fullur af styttum sem ég átti sem barn… eða  dót sem var rosa flott að eiga þegar ég var tvítug, en ekki alveg á miðjum þrítugsaldri. 😅😅

🚛 Flutningar og nýtt skipulag

Þegar við fluttum var það mikill kostur að við höfðum þegar farið yfir dótið. Móðir mín var mjög fljót  að skipuleggja og koma hlutunum fyrir. Það hjálpaði mikið að hún þurfti ekki að hugsa um hvort hún ætti að halda einhverjum hlutum eða ekki – hún var bara að flytja það sem hún vildi hafa á nýja heimilinu.

Eftir flutningana höfum við reglulega farið yfir dótið okkar og endurmetið hvort við viljum halda því. Stundum þarf maður tíma til að melta hvort maður vilji halda í hlutinn eða losa sig við hann. Hann þjónaði manni á einum tímapunkti, en kannski ekki lengur.

📦 Hvernig byrjarðu? – Skref-fyrir-skref tiltekt fyrir flutninga

Flutningar geta verið stressandi, en með réttu skipulagi verður ferlið miklu auðveldara. Hér eru auðveld skref til að byrja:

1️⃣ Byrjaðu á litlu svæði

  • Ekki reyna að taka allt í einu! Veldu einn skáp, eina skúffu eða eitt herbergi og byrjaðu þar.

2️⃣ Veldu þrjá flokka

  • Halda – Það sem þú notar reglulega og þarft á nýja staðnum.
  • 🎁 Gefa / Selja – Það sem er í góðu standi en þú þarft ekki lengur
  • 🗑 Henda – Það sem er skemmt, bilað, útrunnið eða ekki nothæft.

3️⃣ Að hafa í huga þegar farið er yfir hlutina sína

Spurðu þig:

  • Notaði ég þetta á síðasta ári?
  • Hefur þetta eitthvert gildi fyrir mig?
  • Færir þetta einhverjum öðrum meira gagn?

4️⃣ Veldu rétta stærð á flutningskössum

  • Mín reynsla er að hafa flutningskassa í sömu stærð – lítill, mið, stór – þar sem þeir raðast betur í flutningum og auðvelda ferlið. Til að fá alla í sömu stærð þarftu að kaupa þá, en auðvitað getur þú notað kassa sem fást gefins út í búð.

5️⃣ Merktu alla kassa á skýran hátt

  • Til að auðvelda flutninga er gott að merkja hvern kassa á öllum hliðum (og efst ef þú vilt). Það sparar tíma við flutninga því þú þarft ekki að snúa kössunum til að finna út hvað er í þeim.
  • Dæmi: “Eldhús – Bollar og glös“, “Baðherbergi – Snyrtivörur“. Þetta gerir uppsetningu mun auðveldari í nýju húsnæðinu.

📌 Samantekt: Gott að huga að

🌟 Það að fara reglulega yfir dótið sitt gerir flutninga auðveldari en einnig lífið almennt. Því fyrr sem þú byrjar, því minna stress verður það síðar!

🌟 Ef þú ert að hjálpa einhverjum að fara yfir eigur sínar er mjög mikilvægt að ýta ekki á neinn að losa sig við hluti sem þeir eru ekki tilbúnir að sleppa takinu á. Sumir tengjast hlutunum sínum tilfinningalega og eru ekki tilbúnir að losa sig við þá. Það skiptir máli að vera mjúkur í tali og ekki pirrast við þau. Mundu, það er ROSA stórt skref fyrir þau að biðja um aðstoð.

📞 Ef þér vantar aðstoð við tiltekt og skipulag, hafðu samband hér

Kær kveðja
Arnrún