Spurt og svarað
Your Attractive Heading
Svar: Verðið ræðst af umfangi og þörfum hvers verkefnis. Ég skoða rýmið, met hvaða þjónusta hentar best og útbý verðtilboð í samræmi við það. Þannig tryggjum við að verkið verði unnið með gæðum og nákvæmni sem hentar þínum aðstæðum, á sanngjörnu verði.
Svar: Nei, það er engin skuldbinding. Við byrjum á að hittast, þar sem ég skoða rýmið og fer yfir þínar þarfir. Eftir það getur þú ákveðið hvort þú viljir nýta þjónustuna mína.
Svar: Lengd verkefnisins fer eftir umfangi og þörfum hvers rýmis. Fyrir minni rými gæti það tekið einn dag, en fyrir stærri verkefni gæti þurft nokkra daga þar sem ég vinn að jafnaði 4 klukkustundir á dag. Við byrjum á að hittast og meta þínar þarfir svo ég geti gefið þér raunhæfa tímaáætlun sem hentar verkefninu.
Svar: Nei, ég býð ekki upp á föst tilboð fyrir verkefni þar sem hvert heimili er mismunandi. Ég byrja yfirleitt á 4 tíma vinnu og met svo framhaldið í samráði við viðskiptavininn.
Svar: Já, það er yfirleitt betra ef þú ert með mér í ferlinu, sérstaklega þegar þarf að taka ákvarðanir um hvað á að halda og hvað má fara. Þannig tryggjum við að skipulagið henti þér og þínum þörfum. Hins vegar, ef þú getur ekki verið til staðar allan tímann, get ég haldið áfram með leiðbeiningum þínum eftir að hafa komið á skýru skipulagi.
Svar: Nei, það er ekki alltaf nauðsynlegt að kaupa nýjar geymslulausnir. Við byrjum á að nota það sem þú átt þegar og metum hvort það hentar þínum þörfum. Ef við sjáum að einhverjar viðbótarlausnir gætu gert skipulagið enn skilvirkara, þá get ég mælt með hentugum boxum eða körfum, en það er alfarið þitt val hvort þú viljir bæta þeim við.
Svar: Ég býð upp á ókeypis ráðgjöf innan klukkutíma fjarlægðar frá höfuðborgarsvæðinu. Í ráðgjöfinni skoðum við saman þau rými sem þú vilt vinna með og ræðum markmiðin þín fyrir skipulagið. Ég mun veita þér faglegar ráðleggingar og hjálpa þér að finna bestu lausnirnar fyrir þínar aðstæður.
Ef þú ert óviss um hvar þú átt að byrja eða hvaða hlutir skipta mestu máli, þá er ég hér til að leiða þig í gegnum ferlið. Markmið mitt er að skapa skipulag sem hentar þér og þínum lífsstíl.
Svar: * Hvaða rými þarftu aðstoð með — og hversu mörg eru þau?
* Ef það eru mörg rými: hvaða topp 3 viltu byrja á?
* Hversu margir búa á heimilinu?
* Stutt lýsing á vandanum.
*Hvaða markmið viltu ná með þjónustunni?
Svar: Nei, ég býð ekki upp á þjónustu við skipulagningu á rafrænum skjölum,
Svar: Ég býðst til að fara með hlutina sem þig langar að farga upp í Sorpu fyrir vægt gjald.
Svar: Ef pöntun er afboðuð með minna en 48 klukkustunda fyrirvara, verður greitt afbókunargjald að upphæð 10.000 kr. Ef þú þarft að breyta bókuðum tíma, vinsamlegast láttu mig vita eins fljótt og auðið er, helst með nokkurra daga fyrirvara. Þannig get ég betur lagað dagskrána mína og tryggt þér tíma sem hentar þínum þörfum.
“Love Nature has an amazing team of hard-working professionals. It has been a pleasure to meet them.”
Emily Davis