Af hverju Betra Skipulag?
Sæl og velkomin á bloggið mitt, Betra Skipulag!
Mig langar að deila með þér hvernig Betra Skipulag varð til og af hverju ég brenn fyrir því að hjálpa öðrum að skapa friðsæl og skipulögð rými.
Fyrir mér byrjaði þetta allt með ástríðu fyrir skipulagi.
Ég hef alltaf elskað að sjá rými breytast – hvernig hlutir fara á sinn stað og hvernig það breytir ekki bara útliti heldur líka tilfinningunni í rýminu. Það veitir mér svo mikla ánægju að hjálpa öðrum að ná þessum árangri – hvort sem það er að koma skápum í lag, skapa betri nýtingu á rými eða einfalda lífið.
Við höfum öll verið þar – rýmið okkar byrjar hægt og rólega að fyllast af dóti, og áður en við vitum af, erum við farin að troða hlutum inn í skápa í von um að koma þeim fyrir. Það er eins og dótið mitt hafi verið orðið eins og ættingi sem bara vill ekki fara heim eftir jólaboðið. Þú veist ekki hvort þú eigir að segja „takk fyrir komuna“ eða „ertu ekki að verða þreytt/ur?“
Þessi óreiða getur verið yfirþyrmandi. Það er svo auðvelt að láta hugann flækjast: „Úff, þetta er komið út um allt – hvar á ég að byrja?“ Það er þar sem ég kem inn – með ást, hlýju og kannski smá húmor.
Mitt hlutverk
Ég er hér til að vera stuðningur þinn og samstarfsfélagi í að koma rýminu þínu í lag.
Hvort sem þú þarft hjálp við:
- Heimilið þitt
- Fyrirtækið
- Flutninga
– þá er ég til staðar.
Kannski ertu að flytja og vilt fara yfir dótið til að taka aðeins með þér það sem virkilega skiptir máli, eða þú vilt skipuleggja nýja rýmið þannig að allt eigi sinn stað. Eða kannski vantar þig bara smá skipulag í skápana heima.
Ég er hér til að hjálpa þér að skapa rými sem hentar þínum þörfum og lífsháttum – á þínum hraða og án pressu.
Það er engin krafa um að losa sig við dót; stundum þarf bara að raða upp á nýtt og finna lausnir sem virka fyrir þig.
Við förum saman í þetta verkefni, og þú þarft ekki að skammast þín fyrir ástandið. Ég veit hversu gott það er að hafa einhvern með sér til að fá kraft til að byrja – einhvern sem dæmir ekki heldur hjálpar þér að sjá möguleikana.
Af hverju skipulag?
Skipulag er meira en bara að raða dóti og hreinsa til.
Það er leið til að skapa rými sem veitir:
- Ró
- Gleði
- Þægindi
auðveldara að slaka á og njóta umhverfisins.
Ég hef alltaf haft ánægju af að sjá hvernig rými breytist. Það er eitthvað svo skemmtilegt við að sjá skápa og herbergi umbreytast – ekki bara í útliti heldur í tilfinningu. Þegar rýmið er í lagi, þá er hugurinn líka rólegri. Það er mín ástríða, og ég elska að deila henni með öðrum.
Ef þú ert tilbúin/n að taka skrefið og færa líf þitt í betra skipulag, þá er ég hér til að hjálpa. Hafðu samband, og við byrjum þetta ferðalag saman!
