Það er gott að hafa
Betra Skipulag
Vertu ófeimin/n og bókaðu ókeypis ráðgjöf
Ég er hér fyrir þig
Ég er hér til að styðja þig í gegnum ferlið – ekki bara að koma skipulagi á, heldur að hjálpa þér að hefja fyrstu skrefin.
Ég veit að það sem stoppar marga er ekki viljinn, heldur að vita ekki hvar á að byrja. Þegar hlutir safnast upp getur það orðið yfirþyrmandi og tekið mikla orku að taka ákvarðanir um hvað á að gera við hvern hlut.
Það getur líka verið erfitt að bjóða einhverjum inn á heimilið sitt, sérstaklega þegar maður er sjálfur ekki sáttur við stöðuna. Þess vegna legg ég áherslu á að mæta þér með skilningi og virðingu – þetta er þitt rými og við vinnum þetta saman á þínum forsendum.
Stundum breytist lífið. Það geta verið tímabil eins og flutningar, skilnaður eða missir – eða einfaldlega tími þar sem hlutir hafa smám saman safnast upp og heimilið orðið yfirþyrmandi.
Ég tek tillit til þess að margir hlutir hafa sögu og tilfinningalegt gildi. Þess vegna snýst þetta ekki bara um að taka til, heldur að skilja hvað skiptir þig máli og setja upp skipulag sem styður við þitt líf í dag.
Við vinnum þetta saman, á þínum hraða, með skýrum skrefum og lausnum sem henta þér.
Um mig
Ég heiti Arnrún og hef mikla ánægju af því að hjálpa fólki að koma skipulagi á heimilið sitt á raunhæfan og persónulegan hátt.
Ég stofnaði Betra Skipulag því ég veit hversu erfitt það getur verið að byrja þegar maður er einn í þessu. Það er allt annað að hafa einhvern sér við hlið sem styður þig og hjálpar þér að halda áfram.
Ég trúi því að heimilið hafi mikil áhrif á vellíðan okkar og hef séð það í gegnum mína reynslu. Það sem skiptir mig máli er að finna skipulag sem er auðvelt fyrir þig að ganga frá og nota í daglegu lífi.

Algengar spurningar
Svar: Hvert heimili er einstakt og því fer verðið eftir umfangi og þörfum hvers verkefnis.
Þjónustan byrjar frá 50.000 kr. án vsk og upp úr
Svar: Nei, það er engin skuldbinding. Við byrjum á að hittast, þar sem ég skoða rýmið og fer yfir þínar þarfir. Eftir það getur þú ákveðið hvort þú viljir nýta þjónustuna mína.
Svar: Lengd verkefnisins fer eftir umfangi og þörfum hvers rýmis. Fyrir minni rými gæti það tekið einn dag, en fyrir stærri verkefni gæti þurft nokkra daga þar sem ég vinn að jafnaði 4 klukkustundir á dag. Við byrjum á að hittast og meta þínar þarfir svo ég geti gefið þér raunhæfa tímaáætlun sem hentar verkefninu.
Svar: Nei, ég býð ekki upp á föst tilboð fyrir verkefni þar sem hvert heimili er mismunandi.
Ég byrja yfirleitt á 4 tíma vinnu og met svo framhaldið í samráði við viðskiptavininn,
eftir því hvað hentar best og hversu oft óskað er eftir þjónustu.
Svar: Já, það er yfirleitt betra ef þú ert með mér í ferlinu, sérstaklega þegar þarf að taka ákvarðanir um hvað á að halda og hvað má fara. Þannig tryggjum við að skipulagið henti þér og þínum þörfum. Hins vegar, ef þú getur ekki verið til staðar allan tímann, get ég haldið áfram með leiðbeiningum þínum eftir að hafa komið á skýru skipulagi.
Svar: Nei, það er ekki alltaf nauðsynlegt að kaupa nýjar geymslulausnir. Við byrjum á að nota það sem þú átt þegar og metum hvort það hentar þínum þörfum. Ef við sjáum að einhverjar viðbótarlausnir gætu gert skipulagið enn skilvirkara, þá get ég mælt með hentugum boxum eða körfum, en það er alfarið þitt val hvort þú viljir bæta þeim við.
Svar: Ég býð upp á ókeypis ráðgjöf innan stórhöfuðborgarsvæðisins.
Við skoðum saman þau rými sem þú vilt vinna með og ég hjálpa þér að finna bestu lausnirnar fyrir þig.
Ef þú býrð utan stórhöfuðborgarsvæðisins getum við tengst í gegnum FaceTime eða símtali
Svar: Til að undirbúningurinn nýtist sem best er gott að hugsa aðeins út í eftirfarandi:
*Hvaða rými þarftu aðstoð með — og hversu mörg eru þau?
*Ef það eru mörg rými, hvaða 2–3 viltu byrja á?
*Hversu margir búa á heimilinu?
*Stutt lýsing á vandanum eða hvað hefur verið áskorun.
*Hvaða markmið viltu ná með þjónustunni — t.d. meiri ró, pláss eða betra skipulag?
Ef þú ert óviss um eitthvað, þá er ég hér til að leiða þig í gegnum ferlið og finna bestu lausnirnar fyrir þínar þarfir.
Svar: Nei, ég býð ekki upp á þjónustu við skipulagningu á rafrænum skjölum,
Svar: Ég býðst til að fara með hlutina sem þig langar að farga upp í Sorpu fyrir vægt gjald.
Svar: Ef pöntun er afboðuð með minna en 24 klukkustunda fyrirvara, áskil ég mér rétt til að innheimta afbókunargjald.
Ef þú þarft að breyta bókuðum tíma, vinsamlegast láttu mig vita eins fljótt og auðið er.
Þannig get ég betur lagað dagskrána mína og tryggt þér tíma sem hentar þínum þörfum.


